Þórir Schiöth tannlæknir

Um okkur

Tannlæknastofan Bæjarhrauni í Hafnafirði er rekin af Tannréttingum Þóris ehf. og Bæjarbrosi ehf. Á tannlæknastofunni starfa Þórir Schiöth tannlæknir og sérfræðingur í tannréttingum og Róbert Gerald tannlæknir. Tannlæknastofan er vel útbúin til allra tannlækninga.

Þórir notar eingöngu DAMON tannréttingakerfi. Róbert sinnir öllum almennum tannlækningum. Tannlæknastofan er opin virka daga frá kl. 9-17 og annan hvern föstudag frá kl. 8-12. Bóka má tíma í s: 565-9020.

Um Þóri Schiöth tannlækni og sérfræðing í tannréttingum

Menntun:

Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1983.

Háskóli Íslands: Útskrifaðist úr tannlæknanámi (Cand. odont.) 1990.

Sérnám í tannréttingum við Universität Bern í Sviss 2002-2005.

Þórir hefur unnið við allar tannlækningar og hefur mikla reynslu.  Hann er með sérfræðingstitill í tannréttingum frá Landlæknisembættinu og hefur fengið verðlaun á erlendum ráðstefnum.

Fyrri störf: Margvísleg störf á námsárunum til lands og sjávar. Starfaði sem tannsmiður námsárið 1988 og aðstoðartannlæknir sumarið 1989. Hóf árið 1990 störf sem tannlæknir og hefur rekið eigin tannlækningastofur síðan.

Félags- og trúnaðarstörf: Var formaður Tannlæknafélags Íslands og starfaði í ýmsum nefndum félagsins. Er leiðsögumaður með hreindýraveiðum og var í nefnd sem sinnti endurmenntun hreindýraleiðsögumanna. Stofnaði blakdeild Hattar og var formaður. Var í stjórn Landssambands ísl. Akstursíþróttafélaga (L.Í.A.). Formaður Akstursíþróttafélagsins Starts. Í framkvæmdastjórn Fjölmiðlafélags L.Í.A. og í ritstjórn sjónvarpsþáttarins Mótorsports 1993-94.

Íþróttir: Keppti á Íslandsmóti í fyrstu deild í blaki á námsárunum og spilaði úrslitaleiki til Íslandsmeistaratitils ásamt því að spila með unglingalandsliðinu. Keppti í torfæruakstri á eigin sérsmíðuðum bíl 1992-96 og varð bikarmeistari Landsambands Íslenskra Akstursíþróttafélaga í torfæruakstri.

Áhugamál: Þjálfaði í blakdeild Hattar á Egilsstöðum. Er með bíladellu varðandi gamla jeppa. Keppandi og starfsmaður torfærukeppna. Stundar nú útivist og hreindýraleiðsögn.